Eins og stundum áður virðist Hollendingurinn Anish Giri ætla að verða helsti keppinautur Magnúsar Carlsen á stórmótinu í Wijk aan Zee sem lýkur um helgina. „Sigur“ Giris yfir Daniil Dubov í 6. umferð virðist hafa gefið Hollendingnum byr undir báða vængi en í þeirri skák var einungis leikið einum leik, 1. d2-d4, því að Dubov mætti ekki til leiks eftir að hafa harðneitað að tefla með grímu. Rétt áður en skákin hófst hafði hann verið greindur neikvæður af Covid-19 en umgengist einhvern smitberann og mótsstjórnin setti honum þessa kosti sem Dubov gat ekki sætt sig við. Giri vann svo einnig næstu tvær skákir og Magnúsi, sem stundum hefur grínast með alltof mörg jafntefli keppinautar síns, fannst greinilega að þarna hefði kappið borið fegurðina ofurliði og lét í veðri vaka að sjálfur hefði hann boðist til að tefla skákina á næsta frídegi. En staðan fyrir lokasprettinn sem hófst í gær var þessi: 1. Magnús Carlsen 7 v . (af 10) 2. Giri 6½ v. 3.-4. Mamedyarov og Rapport 6 v. 5.-7. Esipenko, Karjakin og Vidit 5½ v. 8. Caruana 5 v. 9.-10. Duda og Van Foreest 4½ v. 11. Shankland 4 v. 12.-13. Dubov og Pragnanandhaa 3½ v. 14. Grandelius 3 v.
Magnús hefur unnið alla þá þrjá sem koma næstir á mótstöflunni. Aserinn Mamedyarov virðist alltaf eiga jafn erfitt með að stilla upp gegn Norðmanninum og í 9. umferð entist hann ekki nema í 27 leiki:
Wijk aan Zee 2022; 9. umferð:
Magnús Carlsen – Shakriyar Mamedyarov
Katalónsk byrjun
1. d4 Rf6 2. Rf3 d5 3. c4 e6 4. g3 dxc4 5. Bg2 Bb4+ 6. Bd2 a5 7. O-O O-O 8. e3 Ha6 9. Dc2 b5 10. a4 c6 11. Rc3 Hb6 12. e4 Be7 13. e5 Rd5 14. axb5
14. … cxb5?!
Mamedyarov velur að fórna skiptamun og sennilega er það ekki alslæm hugmynd. En eðlilegra var 14. … Rb4 15. De4 cxb5 en sennilega gast honum ekki að stöðunni eftir 16. Hxa5. Hvítur virðist hafa sóknarfæri á kóngsvæng.
15. Rxd5 exd5 16. Bxa5 Rc6 17. Bxb6 Dxb6 18. Ha8 h6?
Nú fer að halla undan fæti. Nefna má að vélarnar telja stöðu svarts allt að því teflanlega eftir besta leikinn, 18. … Be6.
19. Hfa1
Athyglisverður möguleiki var 19. Hxc8!? Hxc8 20. Df5 ásamt 21. e6.
19. … Be6 20. Dd1 b4 21. b3 c3 22. H8a6 Dc7 23. Re1!
Hittir á alla bestu reitina sem endranær.
23. … f6 24. Rd3 fxe5 25. Rxe5
25. … Rxe5 26. Hxe6 c2 27. De1
– og svartur gafst upp.
Hver einasti skólastrákur í Rússlandi
Uppruni frægra kennisetninga skákarinnar eða ummæla sem í fyrstu virtust alveg út í bláinn en öðluðust síðar dýpri merkingu eru stundum svolítið á reiki. „Hótunin er sterkari en leikurinn,“ er merkilegur frasi en stundum ranglega eignaður Aaron Nimzowitsch. Ein fræg setning sem nýlega fékk „upprunavottvorð“ á síðum hollenska tímaritsins „New in Chess“ spratt út frá þessar stöðu:
Ólympíumótið í München 1958:
Mikhael Botvinnik – C.H.O.D. Alexander
Botvinnik lék síðast 11. exf5 sem Alexander svaraði með 11. … Bxf5 og tapaði án þess að fá rönd við reist. Eftir skákina sátu þeir yfir taflinu en þegar ellefta leik Alexanders bar á góma hrökk upp úr Botvinnik þessi fræga setning: „Hver einasti skólastrákur í Rússlandi veit að í kóngsindverskri vörn drepa menn með peði á f5.“
Þar höfum við það.
Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 29. janúar 2022.
















