Þeir félagar Hilmir Freyr Heimisson og Alexander Oliver Mai vinna nú mikla landvinninga í Serbíu þar sem þeir sitja nú að tafli í IM flokki.
Hilmir er í banastuði og vann enn og aftur sigur í sjöundu umferðinni. Slóvenski FIDE meistarinn Jan Marn (2221) laut í dúk að þessu sinni gegn Hilmi og er okkar maður enn efstur með 6 vinninga af 7 og árangur sem samsvarar 2546 skákstigum hingað til! Hilmir hefur mætt nægjanlega mörgum titilhöfum og því þarf aðeins að klára síðustu tvær skákirnar. Líklegt er að 1 vinningur af 2 dugi til.
Alexander Oliver Mai er einnig að eiga mjög traust mót og gerði í dag jafntefli við stórmeistarann reynda Zlatko Ilincic. Alexander er að ná sér í fína reynslu og elóstig í bankann!
Vignir Vatnar Stefánsson átti að vera að tefla í GM flokki í Serbíu en hann lenti í hremmingum á Ítalíu en er nú loks kominn til Serbíu og ætti að ná næsta móti sem hefst 14. febrúar.
Skák Hilmis Freys í dag
Skák Alexanders















