Hilmir Freyr Heimisson er í dauðafæri í Serbíu að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Náist áfanginn er Hilmir orðinn alþjóðlegur meistari þar sem hann hefur þegar náð tveimur áföngum og komist yfir 2400 elóstig.
Hilmir hafði svart gegn stórmeistaranum reynda Zlatko Ilincic (2331) í umferð dagsins og skyldu þeir jafnir. Hilmir er því með 6,5 vinning eftir umferðirnar 8 og er í efsta sæti á mótinu.
Alexander Oliver Mai tapaði sinni skák í dag gegn Nikolay Averin (2060) og stigagróðinn hingað til á mótinu því á pari.
Hilmir mætir stórmeistaranum Dejan Pikula (2337) í lokaumferðinni og nægir jafntefli til að tryggja sér áfangann og titilinn! Hilmir hefur hvítt í skákinni!
Skák Hilmis:
Skák Alexanders
- Auglýsing -
















