Magnús Carlsen vann glæsilegan sigur á stórmótinu í Wijk aan Zee sem lauk um síðustu helgi. Þetta var áttundi sigur hans í A-flokki mótsins en ef bætt er við sigri hans í C-riðli árið 2004 eru sigrarnir níu talsins. Magnús var búinn að tryggja sér sigur fyrir síðustu umferð því að þá lá fyrir að hann fengi vinning án taflmennsku; rétt fyrir lokasprettinn varð mótherji hans, Daniil Dubov, að hætta keppni, nýgreindur með Covid. Hann hafði áður neitað því að tefla með grímu en fékk síðar þennan úrskurð og gat ekki teflt þrjár síðustu skákir sínar. Í 12. umferð sýndi Magnús styrk sinn og vann Caruana með svörtu. Lokaniðurstaðan varð þessi: 1. Magnús Carlsen 9½ v. (af 13) 2.-3. Mamedyarov og Rapport 8 v. 4. Giri 7½ v. 5.-6. Karjakin og van Foreest 7 v. 7.-8. Esipenko og Caruana 6½ v. 9.-10. Duda og Vidit 6 v. 11.-12. Shankland og Pragnanandhaa 5½ v. 13. Grandelius 4½ v. 14. Dubov 3½ v.
Staðarmetið í 13 umferða móti í Wijk aan Zee er 10 vinningar af 13 og því deilir Magnús með þeim Kasparov frá 1999 og Caruana frá 2020. Magnús hlaut 10 v. af 13 árið 2013. Hann hefði hugsanlega getað jafnað eigið met hefði hann unnið skák sína í 11. umferð. Það er góð æfing fyrir hvern sem er að spreyta sig á þessari stöðu:
Wijk aan Zee 2022:
Magnús Carlsen – Santhosh Vidit
Enginn efast um endataflshæfni Norðmannsins en hann er samt mannlegur og lék 36. d7? Eftir 36. … Hc2+ 37. Kb6 Hd2 38. Kc7 Hc2+ 39. Kd8 b4 varð jafntefli niðurstaðan.
„Vélarnar“ voru fljótar að benda á vinningsleið sem er í stórum dráttum þessi: 36. He7+! Kf6 (eftir 36. … Kf8 37. Hc7 finnst engin vörn gegn hótuninni 38. Hc8+ og 39. d7) 37. He4! , t.d. 37. … Kf7 38. d7 Hc2+ (annars kemur 39. He8.) 39. Kb7 Hd2 40. Kc7 Hc2+ 41. Kd8 g5 42. He7+ Kf8 43. He5 Kf7 44. g4! og eftir Hf5+ sleppur kóngurinn út og svartur verður að gefa hrókinn fyrir d-peðið.
Skákþing Reykjavíkur hafið
Stjórn Taflfélags Reykjavíkur ákvað skiljanlega að fresta Skákþingi Reykjavíkur sem átti samkvæmt hefð að hefjast í janúarbyrjun. En á miðvikudaginn var þingið sett og eru keppendur í efsta flokki 40 talsins. Hjörvar Steinn Grétarsson er langstigahæstur keppenda og munar meira en 200 elo-stigum á honum og næsta manni, sem er Sigurbjörn Björnsson. Davíð Kjartansson kemur þar næstur en þessir tveir eru líklegastir til að veita Hjörvari keppni.
Heimsbikarmót FIDE í Berlín
Í gær hófst í Berlín heimsbikarmótaröð FIDE, sem á að gefa 24 skákmönnum kost á að keppa um tvö sæti í áskorendamótinu sem fer fram í Madrid síðar á þessu ári. Mótaröðin telur þrjú mót og allir keppendur eiga keppnisrétt í tveimur þeirra. Í Berlín tefla 16 skákmenn með útsláttarfyrirkomulagi í fjórum riðlum en skiptingin er þessi: A-riðill: Grischuk, Nakamura, Epsenko, Bacrot. B-riðill: Wojtaszek, Rapport, Fedoseev, Oparin. C-riðill: Aronjan, Vidit, Dubov, Keymer. D-riðill: So, Dominguez, Harikrishna, Shirov.
Kínverjinn Liren Ding, sem er þriðji stigahæsti skákmaður heims, fékk ekki vegabréfsráritun til Berlínar og getur því ekki verið með í fyrsta mótinu. Hann má aðeins nýta sér keppnisrétt í öðru af þeim tveimur mótum sem eftir eru og því er útilokað að hann komist í áskorendamótið.
Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 6. febrúar 2022.
















