Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2520) og Guðmundur Kjartansson (2450) gerðu báðir jafntefli í 9. umferð EM einstaklinga sem fram fór í gær í Terme Catez í Slóveníu.
Hannes hefur 5½ vinning og er í 51.-93 sæti (63. sæti á oddastigum) og Gummi er í 94.-138. sæti (94. sæti á oddastigum). Þýski stórmeistarinn Matthias Bluebaum (2642) er efstur með 7½ vinning
Tíunda og næststíðast umferð fer fram í dag og hefst kl. 13. Hannes teflir þá stigahæsta keppenda mótsins, tékkneska stórmeistarann, David Navara (2700), en Gummi við spænska stórmeistarann Rosell Alvar Alonso (2565).
Alls taka 317 skákmenn frá 40 löndum þátt í mótinu. Þar af eru 114 stórmeistarar. 20 efstu sætin gefa keppnisrétt á heimsbikarmótinu í skák á næsta ári. Hannes er nr. 94 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 133.
















