Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).

Mótið í kvöld, 5. apríl, verður haldið í sal Skákskólans vegna Reykjavíkurmóts grunnskólaveita sem verður í TR salnum. Sami inngangur, opið verður frá TR og yfir í Skákskólann.

Skákbúðin verður með bóksölu samhliða mótinu í kvöld. Nýir titlar komnir!

——

Arnar Ingi Njarðarson kom sá og sigraði á Þriðjudagsmótinu 29. mars. En tæpt var það! Eftir mikinn hörkusigur í lokaumferðinni gegn Hjálmari Sigurvaldasyni þurfti hann að treysta á góð úrslit fyrir sig á borðunum í kring, og það gekk eftir. Jafntefli milli efstu manna á borðum eitt og tvö: Annars vegar í skák Ingvars Wu og Kristófers Orra, og hins vegar í skák Adams Omarssonar og Kristjáns Dags. Góð mæting var að þessu sinni hjá ungum skákmönnum í mikilli framför, bæði úr röðum TR og Breiðabliks.

TB2 (oddastig númer tvö) eru fleiri sigrar: Arnar vann fleiri skákir en bæðir Kristófer og Ingvar sem einnig fengu fjóra vinninga en gerðu tvö jafntefli, og er Arnar því sigurvegari mótsins.  Hann fær 3000 króna inneign hjá Skákbúðinni. Árangursverðlaunin hlýtur að þessu sinni Josef Omarsson, með 1175 atskákstig. Árangur hans var upp á 1455 stig, þarna er því 280 stiga munur! Josef fær nú í fyrsta sinn inneign í Skákbúðina, og ekki nóg með það, heldur líka 28 atskákstig.

27 skákmenn mættu að þessu sinni og nú var teflt uppi á palli, ef vera skyldi að húsið myndi fyllast. Allur er varinn góður!

Upplýsingar um úrslit og stöðu mótsins má nálgast á chess-results.

Af heimasíðu TR.

- Auglýsing -