Hannes að tafli. Mynd: Heimasíða Cerme mótsins 2022.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2520) gerði jafntefli við tékkneska stórmeistarann Thai Dai Van Nguyen (2623) í áttundu umferð EM einstaklinga í gær í Terme Catez í Slóveníu. Guðmundur Kjartansson tapaði fyrir ungverska stórmeistaranum Peter Prohaszka (2573).

Hannes hefur 5 vinninga og er í 47.-87. sæti (56. sæti á oddastigum) og Gummi er í 88.-137. sæti (88. sæti á oddastigum).

Níunda umferð fer fram í dag og hefst kl. 13. Hannes teflir við pólska stórmeistarann Mateusz Bartel (2616) og Gummi við ungverska stórmeistarann Viktor Erdos (2607).

Alls taka 317 skákmenn frá 40 löndum þátt í mótinu. Þar af eru 114 stórmeistarar.  20 efstu sætin gefa keppnisrétt á heimsbikarmótinu í skák á næsta ári. Hannes er nr. 94 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 133.

 

- Auglýsing -