Kvika Reykjavíkurskákmótið hefst eftir 3 daga í Hörpu. Það gæti orðið metþátttaka á mótinu en nú þegar aðeins 277 keppendur frá 50 löndum skráðir til leiks. Núverandi met er frá 2015 þegar 272 skákmenn tóku þátt. Þar af eru 24 stórmeistarar og 28 alþjóðlegir meistarar.
Þátttökutölurnar í ár verðast að teljast afar góðar. Ekki síst með tilliti til heimsfaraldurs kórónuveirunnar auk þess sem mótið rekst á EM einstaklinga í Slóveníu þar sem um 317 keppendur taka þátt. Þar með talið Hannes Hlífar Stefánsson og Guðmundur Kjartansson sem verður sárt saknað í ár.
Heimavarnarliðið

67 íslenskir keppendur eru skráðir til leiks. Íslendingar eru því um fjórðungur keppenda. Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2542) er stigahæstur heimavarnarliðsins og nr. 14 á stigalista mótsins. Næstir koma alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2501) sem freistar þess að ná lokaáfanga sínum að stórmeistaratitli og stórmeistararnir Jóhann Hjartarson (2465), Þröstur Þórhallsson (2422) og Bragi Þorfinnsson (2419). Nánast allar sterkustu skákkonur landsins taka þátt með stórmeistara kvenna, Lenku Ptácníková (2186) fremsta í flokki.
Erlendu gestirnir
Íranski stórmeistarinn Poyya Idani (2638) er stigahæstur keppenda. Indverjar sitja svip á sinn á mótið en meðal sjö stigahæstu keppenda mótsins eru fimm Indverjar þar á meðal tveir fyrrum sigurvegarar mótsins, Baskan Adhiban (2633) og Abhijeet Gupta (2616).
Bandaríski stórmeistarinn og Hans Niemann (2637) er næststigahæstur keppanda og líklegur til afreka. Einnig má nefna Úsbekann unga Javokhir Sindarov (2609) en sú þjóð hefur heldur betur verið að sækja í sig veðrið á skáksviðinu. Yngsti stórmeistara allra tíma, bandaríska undrabarnið, Mishra Abhimanyu (2524) er meðal keppenda en hann er aðeins 13 ára.

Úkraínskum keppendum var sérstaklega boðið og þar af mæta tvær meðal annars tvær landsliðskonur. Kunnasti keppandinn þaðan er engu að síður goðsögnin, hinn sjötugi, Oleg Romanishin, margfaldur Evrópumeistari með Sovétríkjunum sálugu og síðar Úkraínu.
Skákdrottningar

Níu íslenskir skákkonur taka þátt og allar okkar landsliðskonur. Hin kunna indverska skákdrottning Tania Sachdev lætur sig ekki vanta og það gerir einnig hin indónesíska Sukandar Irine Kharisma ekki heldur. Fulltrúar Úkraínu eru landsliðskonurnar Evgeniya Doluhanova og Mariia Berdnyk. Hin sænska Anna Cramling tekur þátt en hún er dóttir Piu Cramling og hefur slegið í heimalandi sínu fyrir streymi um skák.
Keppendalistann má finna á Chess-Results.
Enn er opið fyrir skráningu í mótið en lokað verður fyrir skráningu í mótið kl. 23:59 á morgun. Minnt er á að hægt er að taka þrjár hálfs vinnings yfirsetur í umferðum 1-7 fyrir þá sem geta ekki teflt allar skákirnar.
















