Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2520) og Guðmundur Kjartansson (2450) sóttu ekki gull í greipar frönsku stórmeistarana Jules Moussard (2630) og Maxime Lagarde (2626) í gær. Töpuðu báðir.
Félagarnir hafa báðir 4½ vinning og eru í 43.-80. sæti. Gummi í því 43 á oddastigum en Hannes í því 59. Þýski stórmeistarinn Matthias Bluebaum (2642) er efstur með 6½ vinning.
Áttunda umferð fer fram í dag og hefst kl. 13. Hannes teflir við tékkneska stórmeistarann Thai Dai Van Nguyen (2623) og Gummi við tékkneska stórmeistarann Peter Prohaszka (2573).
Alls taka 317 skákmenn frá 40 löndum þátt í mótinu. Þar af eru 114 stórmeistarar. 20 efstu sætin gefa keppnisrétt á heimsbikarmótinu í skák á næsta ári. Hannes er nr. 94 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 133.
















