Taflfélag Reykjavíkur hefur annan hvern fimmtudag boðið upp á fullorðinstíma þar sem hinir ýmsu fyrirlesarar hafa mætt með erindi. Síðastliðinn fimmtudag mætti sjálfur Friðrik Ólafsson og deildi skákum og svaraði spurningum um ferilinn. Kvöldið var mjög vel heppnað en gerð var tilraun með að streyma viðburðinum og heppnaðist það nokkuð vel. Vonandi verður framhald á skemmtilegum kvöldum af þessu tagi!
Hægt er að nálgast upptökuna á Facebook síðunni „íslenskir skákmenn“ en einnig er upptakan nú komin á YouTube:
Skákirnar sem voru skoðaðar og minnst var á má nálgast hér: https://lichess.org/study/P3eSxjOY
- Auglýsing -

















