Þrjár efstu Þessar urðu efstar á vel sóttu stúlknamóti sem fram fór í samkomusal Siglingaklúbbsins Ýmis, f.v.: Guðrún Fanney Briem, Freyja Birkisdóttir sem varð efst og Iðunn Helgadóttir. — Ljósmynd/Helgi Árnason.

Gens una sumus. Við erum ein fjölskylda. Þessi einkennisorð Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, blöstu við á stórum borða í Laugardalshöllinni fyrir 50 árum þegar Fischer og Spasskí háðu sitt fræga einvígi. En þessi orð eiga ekki við í dag og vandséð hver aðkoma Rússa verður í sumar þegar haldið verður upp á hálfrar aldar afmæli einvígisins. Sem betur fer eru þeir til meðal fremstu skákmeistara Rússa sem lýst hafa opinberlega yfir andúð sinni á innrásinni í Úkraínu. Má þar nefna Jan Nepomniachtchi, Peter Svidler, Alexander Grischuk og Alexöndru Kosteniuk. En Sergei Karjakin, fæddur og uppalinn Úkraínu og tók út sinn skákþroska þar, en gerðist rússneskur þegn árið 2009, var á dögunum dæmdur í sex mánaða keppnisbann af siðanefnd FIDE fyrir ömurleg ummæli og stuðning við innrás Rússa.

Því hefur verið haldið fram að Pútín, sem er þekktur skákáhugamaður og gamall KGB-agent, hafi aldrei sætt sig við endalok Sovétríkjanna og að í huga hans hafi raunverulegt uppgjör aldrei farið fram. Mín kynslóð ólst upp við magnaðan rússneskan skákkúltúr og að tefla í einhverju lýðveldi Sovétríkjanna var besta leiðin til að auka styrk sinn; á einu ári, 1988-’89, tefldi ég á þremur alþjóðlegum mótum eystra: í Jerevan, Sotsjí og Moskvu. Það var líka stór stund að mæta Sovétmönnum á ólympíumótum og það gerðum við fjórum sinnum á tímabilinu 1980-1990. Íslendingar tefldu við Sovétmenn í síðustu viðureign stórveldisins á ólympíumótinu í Novi Sad í gömlu Júgóslavíu haustið 1990.

Þegar horft er yfir farinn veg þá blasir við að Rússar og Úkraínumenn áttu flesta skákmennina í liðum Sovétríkjanna sem unnu öll ólympíumót utan eitt á tímabilinu 1952-1990. Efim Geller kom frá hafnarborginni Odessa en hinir eru flestir frá Lviv og grennd: Leonid Stein, Oleg Romanishin, Alexander Beljavskí og Vasilí Ivantsjúk. Hvernig má það gerast að Rússar ráðist með slíkri heift á gamla bræðraþjóð sína? „Fasismi er lygi sem er borin fram af ruddum,“ sagði Ernest Hemingway í ræðu fyrir 85 árum („… facism is a lie told by bullies“). Rússneski sendiherrann sem kom fram hjá RÚV um daginn hefði alveg mátt sleppa þeirri lygaþvælu að athæfi Rússa sé eitthvað annað en morðárás. Íslendingar eru betur upplýstir en svo að nokkur trúi slíku. Það er ekki verið að loka á samfélagsmiðlana hér né heldur raunverulegar fréttir. En kannski var þessi maður ekki frjáls orða sinna.

Látum fremsta skákmann Úkraínu fyrr og síðar eiga síðasta orðið:

ÓL í Istanbúl 2012:

Vasilí Ivantsjúk (Úkraína) – Wang Hao (Kína)

Nimzo-indversk vörn

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 0-0 5. Bd3 d5 6. Rf3 b6 7. a3 Bxc3+ 8. bxc3 c6 9. cxd5 cxd5 10. De2 Rc6 11. 0-0 Ra5 12. a4 He8 13. Re5 Re4 14. f3 Rd6 15. Ba3 Bb7 16. Bxd6 Dxd6 17. f4 g6 18. Dg4 Rc4 19. Dg3 Dc7 20. Bxc4 dxc4 21. f5!

Þetta gegnumbrot ræður úrslitum.

21. … f6

22. fxg6 fxe5 23. Hf7 Dc6 24. gxh7+“

Snilldarlega leikið.

24. … Kxf7 25. Hf1+ Ke7

 

 

 

 

26. h8(D)!

Og annar frábær leikur þó að 28. Dg7+hefði líka unnið.

 

 

 

 

26. … Hxh8 27. Dg7+ Kd6 28. dxe5+

– og svartur gafst upp, því mát blasir við, t.d. 28. … Kd5 29. Hd1+ Ke4 30. Hd4+ Kxe3 32. Dg5+ Ke2 33. Dd2 mát.

Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 26. mars 2022.

- Auglýsing -