Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2520) og Guðmundur Kjartansson (2450) gerðu báðir jafntefli í 10. og næstsíðusu umferð EM einstaklinga sem fram fór í gær í Terme Catez í Slóveníu.

Hannes gerði jafntefli við stigahæsta keppenda mótsins, tékkneska stórmeistarann, David Navara (2700) en Gummi spænska stórmeistarann Rosell Alvar Alonso (2565).

Hannes hefur 6 vinning og er í 56.-90 sæti (60. sæti á oddastigum) og Gummi er í 92.-133. sæti (92. sæti á oddastigum). Þýski stórmeistarinn Matthias Bluebaum (2642) og armenski stórmeistarinn Gabriel Sargissian (2681) eru efstir og jafnir með 8 vinninga.

Lokaumferðin fer fram í dag. Hannes mætir ísrealska FIDE-meistaranum Ari Yannay Ben (2417) en Gummi teflir við þýska stórmeistarann Alexander Donchenko (2636).

Alls taka 317 skákmenn frá 40 löndum þátt í mótinu. Þar af eru 114 stórmeistarar.  20 efstu sætin gefa keppnisrétt á heimsbikarmótinu í skák á næsta ári. Hannes er nr. 94 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 133.

 

- Auglýsing -