Kviku Reykjavíkurskákmótið 2022 hefst í dag kl. 15:00 í Hörpu. Þér er er boðið að mæta og vera viðstaddur setningu mótsins. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, setur mótið og leikur fyrsta leik þess. Reykjavíkurborg hefur stutt af miklum myndarskap við mótið síðan fyrsta mótið var haldið í Lídó árið 1964.

Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið nú er í senn afar sterkt og fjölmennt. Um 270 keppendur frá um 45 löndum taka þátt og þar af eru 24 stórmeistarar.

Á mótinu tekur meðal annars þátttakandi frá Grænlandi í fyrsta skipti. Þess má geta að aldursmunurinn á mili elsta og yngsta keppenda mótsins er um 70 ár! Skákin brúar bil!

Heimavarnarliðið

Um það bil 70 Íslendingar taka þátt í mótinu og þar af fimm stórmeistarar. Það eru Hjörvar Steinn Grétarsson, stigahæsti skákmaður landsins, Héðinn Steingrímsson, Jóhann Hjartarson, Þröstur Þórhallsson og Bragi Þorfinnsson láta sig ekki vanta.

Vignir Vagnar Stefánsson, sem vantar aðeins einn áfanga upp á stórmeistaratitilinn tekur einnig þátt sem og nýjasti alþjóðlegi meistari landsins, Hilmir Freyr Heimisson.

Stórmeistari kvenna, Lenka Ptácníková, fer fremst í heimavarnarliði íslenskra skákkvenna. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir eru næstar í stigaröðinnil.

Ofurmenninn og undarbörnin

Íranski stórmeistarinn Pouya Idani er stigahæstur keppenda. Indverjar sitja svip á sinn á mótið en meðal sjö stigahæstu keppenda mótsins eru fimm Indverjar þar á meðal tveir fyrrum sigurvegarar mótsins, Baskan Adhiban og Abhijeet Gupta.

Bandaríski stórmeistarinn og Hans Niemann er næststigahæstur keppanda og líklegur til afreka. Yngsti stórmeistara allra tíma, bandaríska undrabarnið, Mishra Abhimanyu  er meðal keppenda en hann er aðeins 13 ára.

Skákdrottningarnar

Níu íslenskir skákkonur taka þátt og allar okkar landsliðskonur. Hin kunna indverska skákdrottning Tania Sachdev lætur sig ekki vanta og það gerir einnig hin indónesíska Sukandar Irine Kharisma ekki heldur. Fulltrúar Úkraínu eru landsliðskonurnar Evgeniya Doluhanova og Mariia Berdnyk. Hin sænska Anna Cramling tekur þátt en hún er dóttir Piu Cramling og hefur slegið í heimalandi sínu fyrir streymi um skák

Nánar um mótið

Umferðir hefjast yfirleitt kl. 15. Boðið verður upp á skákskýringar alla daga í Hörpu og hefjast þær um tveimur tímum eftir upphaf umferðar eða um kl. 17. Um skákskýringar sjá okkar fremstu skákmenn af þeim sem ekki taka þátt í mótinu að þessu sinni.

Beinar útsendingar á netinu verða í umsjón Ingvars Þór Jóhannessonar

Ítarlegur fréttaflutningur frá mótinu verður alla daga á Skák.is.

Alls konar sérviðburðir verða í gangi allan tímann!

- Auglýsing -