Pólski stórmeistarinn Lukasz Jurmala hefur sannarlega læðst á toppinn á Kviku Reykjavíkurskákmótinu. Sá pólski lét í raun engan vita og kom á eigin vegum á mótið og er allt í einu mættur einn á toppinn!

Í umferð dagsins lagði hann bandaríska ungstirnið Hans Niemann með nokkuð sannfærandi hætti. Niemann beitti opna afbrigðinu í spænska leiknum en lenti í langri og erfiðri vörn sem reyndist honum einfaldlega ofviða. Jurmala bætti stöðuna jafnt og þétt, vann skiptamun og sigldi loks vinningnum heim.

Enn er býsna jafnt á toppnum og tveir Íslendingar eru í seilingarfjarlægð en þeir Hjörvar Steinn Grétarsson og Héðinn Steíngrímsson hafa báðir 3,5 vinning. Litlu munaði að Jóhann Hjartarson bættist í hópinn en hann hafði lengst af betra tafl og á einum punkti glæsilegan vinning en sá danski reyndist háll sem áll og hélt jöfnu.

Vignir Vatnar Stefánsson fékk mjög erfiða pörun í dag gegn Raunak Sadhwani en Vignir hélt jöfnu með gríðarlegri seiglu.

Ritstjórinn, Björn Þorfinnsson, hefur einnig 3 vinninga.

Fimmta umferð fer fram á morgun en þar verða okkar menn í eldlínunni. Héðinn mætir hinum unga Pragganandhaa en Hjörvar fær svart á Niemann. Björn Þorfinnsson fær yngsta stórmeistara heims, týpísk „harmleiks-pörun“ fyrir okkar mann en Vignir og Jóhann fá stigalægri andstæðinga

Mótið á Chess-Results

Fyrstu 3 umferðir á PGN

Myndir frá mótinu (ÞM)

- Auglýsing -