Fjórða umferð Kviku Reykjavíkurskákmótsins hefst kl. 15 í dag. Margar áhugaverðar viðureignir.
Um það bil helmingur skákanna er sýndur beint eða 57 skákir. Hægt er að nálgast þær t.d. á Chess24 og FollowChess.
Ingvar Þór Jóhannesson er með streymi sem hefst þegar liðið er á umferðina.
Skákskýringar eins sterkasta skákmanns landsins hefjast kl. 17 í kvöld.
Áhorfendur velkomnir í Hörpu til að fylgjast með veislunni!
Minnt er á Pub Quiz sem hefst kl. 21:00. Endanleg staðsetning verður tilkynnt hér og á og á íslenskum skákmönnum þegar hún liggur fyrir.
- Auglýsing -
















