Harpa iðar af lífi í dag. Tvær umferðir eru tefldar. Sú fyrri hefst kl. 9 og sú síðari kl. 16.
Pólski stórmeistarinn Lukasz Jarmula (2434) er afar óvænt efstur með 4½ vinning en hann er aðeins 25. stigahæsti keppandinn. Stórmeistararnir Héðinn Steingrímsson (2538) og Jóhann Hjartarson (2465) hafa 4 vinninga og eru meðal keppenda sem eru í 2.-13. sæti. Alþjóðlegu meistararnir Vignir Vatnar Stefánsson (2501), Hilmir Freyr Heimisson (2321), FIDE-meistarinn Sigurbjörn Björnsson (2306) og stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2542) eru næstir með 3½ vinning.
Endalokin í skák Jóhanns og Mads Andersen hafa farið um skákheiminn og tísti Anish Giri meðal annars um þau.
Never seen a bishop promotion being the only winning move in any real game, only in studies!😱 https://t.co/EEfugWkJps
— Anish Giri (@anishgiri) April 9, 2022
Í umferð dagsins teflir Héðinn við undrabarnið Gukesh (2637) og Jóhann við bandaríska stórmeistarann Hans Niemann (2637).
Harpa Blitz fór fram í gær. Indverski alþóðlegi meistarann Soham Das (2001) vann. Vignir Vatnar Stefánsson (2466) varð annar.
Áhorfendur velkomnir í Hörpuna. Hægt er að fylgjast með helstu skákunum á stórum skjá. Skákskýringar í umsjón Helga Áss Grétarssonar hefjast kl. 18.
Um það bil helmingur skákanna er sýndur beint eða 57 skákir. Hægt er að nálgast þær t.d. á Chess24 og FollowChess.
Ingvar Þór Jóhannesson er með streymi sem hefst þegar liðið er á umferðina.
Streymi 5. umferðar
- Auglýsing -
















