
Ungverjar hafa löngum átt frábæra skákmenn og meðal karlpeningsins var sá frægasti án efa Lajos Portisch, einn stöðugasti stórmeistari heims sem tefldi í áskorendakeppninni nær óslitið frá 1965 til 1985. Arftakarnir voru margir hverjir undir greinilegum áhrifum frá Portisch en virtist stundum skorta þor og þrek til að ná hæstu hæðum. Samt tefldi Peter Leko einvígi um heimsmeistaratitilinn við Vladimir Kramnik árið 2004 og var nálægt því að sigra, en þá voru tveir heimsmeistaratitlar „í gangi“ og einvígið haldið undir merkjum PCA, samtaka atvinnuskákmanna, sem voru lögð niður stuttu síðar.
Judit Polgar, sem hætti árið 2014, hafði flesta kosti fram yfir landa sína. Stíll hennar einkenndist af sókndirfsku og keppnishörku. Nokkur bið varð á því að Ungverjar eignuðust slíka meistara aftur eða þar til Richard Rapport kom fram á sjónarsviðið. Hann hefur tekið þátt í nokkrum Reykjavíkurskákmótum og oft náð eftirtektarverðum árangri. Stíl hans er að sumu leyti erfitt að flokka en óvenjuleg byrjanataflmennska hefur lengi vel verið eitt einkenna hans. Hann hefur tekið stór skref fram á við undanfarið sem hefur þokað honum í 10. sæti á stigalista FIDE.
Rapport sigraði á FIDE Grand Prix-mótinu í Belgrad í byrjun mars en mótið var eitt þriggja sem velja þátttakendur í áskorendamótið sem á að hefjast í Madrid á Spáni 17. júní nk. Með því að Sergei Karjakin hefur verið dæmdur í sex mánaða keppnisbann af siðanefnd FIDE er enn óljóst hvernig endanlegur keppendalisti lítur út. Þar við bætist óvissa um hvort Magnús Carlsen muni yfirhöfuð verja heimsmeistaratitilinn, en hann hefur látið í veðri vaka að það muni hann ekki gera – nema áskorandinn verði íranska ungmennið Alireza Firouzsja, sem nú teflir fyrir Frakka.
Í eftirfarandi skák, sem tefld var í Belgrad, mætir Rapport einhverjum mesta byrjanasérfræðingi sem um getur. Það er ekki nokkur leið að koma Maxime Vachier-Lagrave á óvart í byrjun tafls – en samt tókst Rapport það:
FIDE Grand Prix; Belgrad 2022, 1. umferð úrslita:
Richard Rapport – Maxime Vachier-Lagrave
Grünfelds-vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Bc4 c5 8. Re2 0-0 9. Be3 Rc6 10. Hc1!?
Óvenjulegur leikur því oftast hrókerar hvítur. Sennilega vildi Rapport halda því opnu að leika h-peðinu með stuðningi hróksins á h1. Vachier Lagrave þekkir Grünfelds-vörnina betur en nokkur annar og hróksleikurinn hefði ekki átt að koma honum á óvart.
10. … cxd4 11. cxd4 Da5+ 12. Hc3 e5 13. d5 Rd4
Sennilega var 13. … b5!? betri leikur.
14. Bd2! Bd7 15. Rxd4 exd4 16. Hc1 Da3 17. Db3!
Hann skynjar vel að hvíta staðan er alltaf betri eftir drottningauppskipti, aðallega vegna veika peðsins á d4.
17. … Dxb3 18. Bxb3 Hae8 19. f3 f5 20. Hc7 Bb5 21. a4 Bd3
Sækir að e4-peðinu en hvítur á kröftuga gagnsókn!
22. d6+! Kh8 23. d7 Hb8 24. Bb4!
Allt hárbeittir leikir, 24. … Hfd8 strandar á 25. Be7 o.s.frv.
24. … Be5 25. Bxf8 Bxc7
26. Be7!
Hótar 27. Bf6 mát.
26. … Kg7 27. e5! b5 28. Bf6+ Kf8 29. e6 Bd8 30. Be5 Hb6 31. Bxd4 Hc6 32. axb5 Bxb5 33. Kf2 Ke7 34. Be3 Bb6 35. Hd1 Bxe3 36. Kxe3 Hc3 37. Kf4
– og svartur gafst upp.
Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 2. apríl 2022.














