Þrír eru efstir og jafnir á Kviku Reykjavíkurskákmótinu eftir átta umferðir. Max Warmerdam frá Hollandi, indverska ungstirnið Rameshbabu Pragganandhaa og Mads Andersen frá Danmörku eru efstir með 6,5 vinning af 8.
Pragga og Mads unnu sínar skákir, Pragga glæsilega gegn hinum franska Matthieu Cornette. Ein af skákum mótsins.
Nokkuð margir koma í kjölfarið með 6 vinninga og þar á meðal Hjörvar Steinn Grétarsson sem er efstur Íslendinga.
Úrslit munu ráðast í æsispennandi lokaumferð sem hefst kl 11:00
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skákir á PGN (með 8. umferð, vantar nokkrar)
- Myndir (ÞM)
- Auglýsing -














