Hannes að tafli á Íslandsmóti skákfélaga. Mynd: Ómar Óskarsson.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2534) átti góðan dag þegar 2. og 3. umferð alþjóðlegs móts í Przeworsk fóru fram í gær.

Í fyrri umferð dagsins gerði hann jafntefli við pólska alþjóðlega meistarann Pawel Teclaf (2537) en í þeirri síðari vann hann hinn úkraíska stórmeistara Petro Golubka (2380). Hannes er þriðji með 2 vinninga.

Fjórða umferð fer fram í dag. Hannes mætir þá pólska FIDE-meistaranum Jakob Fus (2378). Skákin hefst kl. 13.

Um er að ræða 10 manna lokaðan flokk þar sem meðalstign eru 2445 skákstig. Hannes er næststigahæstur keppenda.

- Auglýsing -