Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2534) vann pólska FIDE-meistarann Jakob Fus (2378) 4. umferð alþjóðlegs móts í Przeworku í Póllandi. Hannes hefur 3 vinninga og er í 2.-3. sæti á mótinu.
Tvær umferðir fara fram í dag. Í fyrri umferð dagsins, sem er nú í gangi, mætir hann pólska alþjóðlega meistaranum Lukasz Liczerski (2439). Í síðari umferð dagsins teflir Hannes við úkraínska stórmeistarann Artem Omelja (2515).
Um er að ræða 10 manna lokaðan flokk þar sem meðalstign eru 2445 skákstig. Hannes er næststigahæstur keppenda.
- Auglýsing -
















