Nepo og Naka eftir örjafnteflið.

Ian Nepomniachtchi (2766) hefur nánast tryggt sér á áskorendamótinu í skák þegar tveimur umferðum er ólokið. Hann hefur tveggja vinninga forskot og þarf því aðeins hálfan vinning til viðbótar.  Í tólftu umferð, sem fram fór í gær, gerði hann jafntefli í sjö leikjum gegn Hikaru Nakamura.

Hart er barist um annað sætið sem gæti gefið keppnisrétt um heimsmeistaratitlinn standi Magnús Carlsen við stóru orðin um að tefla ekki.

Frídagur er í dag.

Sjá nánar frétt á Chess.com.

 

- Auglýsing -