Í gær fór Guðmundar Ingva mótið í skák á Egilsstöðum fram í tilefni af áttræðisafmæli Guðmundar Ingva Jóhannssonar.
Verðlaunahafarnir
Alls voru þátttakendur sex og tefldar voru 15 mínútna skákir. Albert Geirsson varð hlutskarpastur með 4 vinninga en Viðar Jónsson og Kristján Davíðsson fengu 3 vinninga en Viðar var hærri á stigum.
Í kaffinu var Guðmundi Ingva veitt heiðursmerki Skáksambands Íslands fyrir áralangt starf í þágu skáklistarinnar en hann hefur stýrt Skáksambandi Austurlands lengur en elstu menn muna. Skáksambandið þakkar honum jafnframt sérstaklega fyrir hans þátt í Skákþingi Íslands 2011 sem haldið var á Eiðum. Einnig fékk hann að gjöf bókina um Einvígi allra tíma eftir Guðmund G. Þórarinsson frá skákvinum á Austurlandi.
Að lokum fór fram hraðskákmót sem Sverrir Gestsson vann.
- Auglýsing -