Báðar viðureignir íslenska liðsins í 4. umferð ólympíuskákmótsins enduðu með íslenskum sigri. Liðið í opnum flokki vann góðan 3-1 sigur á Nígeríu og kvennaliðið lagði Mósambík einnig 3-1 í æsispennandi viðureign sem réðist í langri skák og tímahraki þegar Mósambík lék sig í mát í einum leik!
Hannes Hlífar vann átakalítinn sigur og Helgi Áss vann einnig góðan sigur með hvítu mönnunum. Sigrar á hvítt og jafntefli með svörtu, eins og það á að vera!

Kvennaliðið lagi sveit Mósambík í æsispennandi viðureign. Tinna tapaði en Lenka vann nokkuð örugglega. Liss sneri svo erfiðri stöðu sér í vil og viðureignin réðist í æsispennandi skák Jóhönnu á 2. borði þegar andstæiðngur hennar lék sig í mát í langri skák.

Andstæðingar morgundagsins í opnum flokki verður sterkt lið Króatíu. Sveitin er sú 17. í stigaröð liða.
Kvennaliðið mætir sveit Wales sem er veikari en sú íslenska á pappírnum fræga (nr. 90).
Lið Íslands í opnum flokki skipa eingöngu stórmeistarar
- Hjörvar Steinn Grétarsson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Guðmundur Kjartansson
- Helgi Áss Grétarsson
- Margeir Pétursson (jafnframt liðsstjóri)
Íslenska liðið er nr. 43 í styrkleiðaröð. Alls taka 188 lið þátt.
Kvennaliðið
- Lenka Ptácníková
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Lisseth Acevedo Mendez
- Tinna Kristín Finnbogadóttir
Liðsstjóri er Ingvar Þór Jóhannesson
Íslenska liðið er nr. 61 í styrkleikaröð. Alls taka 162 lið þátt.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn)
- Chess-Results (kvenna)
- Beinar útsendingar (opinn)
- Beinar útsendingar (kvenna)















