Þátttökurétt í U2000 mótinu hafa allir þeir sem hafa minna en 2000 Elo-stig. Þátttökurétt í Y2000 mótinu hafa allir sem hafa 2000 stig og meira. Miðað er við októberlista Fide 2022. Tefldar eru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartími 90 mínútur fyrir alla skákina auk 30 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik. Leyfðar eru tvær yfirsetur í umferðum 1-5 sem skal tilkynna skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan en 1/2 vinningur fæst fyrir yfirsetu. Teflt er einu sinni í viku, á miðvikudagskvöldum kl. 18.30, í Skákhöll félagsins að Faxafeni 12. Bæði mótin fara fram samtímis.

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Dagskrá

  1. umferð: 12. október kl. 18.30
  2. umferð: 19. október kl. 18.30
  3. umferð: 26. október kl.18.30
  4. umferð: 2. nóvember kl. 18.30
  5. umferð: 9. nóvember kl. 18.30
  6. umferð: 16. nóvember kl. 18.30
  7. umferð: 23. nóvember kl. 18.30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Tímamörk: 90 mín á alla skákina + 30 sek viðbót eftir hvern leik. Enginn aukatími eftir 40 leiki.

Verðlaun: 90% af greiddum þáttökugjöldum fara í verðlaunasjóð sem skiptist svona: 1. sæti 50%, 2. sæti 30%, 3. 20%.

Röð mótsstiga (tiebreaks):  1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. Fleiri sigrar

Þátttökugjöld: 18 ára og eldri kr. 5.000, kr. 3.000 fyrir félagsmenn í TR. 17 ára og yngri kr. 2.000, frítt fyrir félagsmenn í TR.

Skákstjórn: Auglýst síðar.

Skráningarform í Undir 2000 mótið

Þegar skráðir í Undir 2000 mótið

Skráningarform í Yfir 2000 mótið 

Þegar skráðir í Yfir 2000 mótið

- Auglýsing -