Arnar, Lenka og Stephan. Mynd: Heimasíða TR.

Lenka Ptacnikova varð efst á Jólahraðskákmóti T.R. sem fram fór 29. desember. Keppnin var jöfn og hörð en hún hafði tryggt sér sigur fyrir síðustu umferð. Lenka hlaut 9 vinninga af 11. Arnar Milutin varð annar með 8½ vinning og Stephan Briem og Matthías Björgvin Kjartanssn urðu í 3.-4. sæti með 8. Árangur Matthías var afar góður og stigabreyting upp á u.þ.b. 200 stig er eftirtektarverður.

Keppendur voru 39 og skákstjórn var í höndum Ríkharð Sveinssonar.

Nánari úrslit má finna á chess-results

Myndir frá mótinu:

- Auglýsing -