Hið árlega jólahraðskákmót SA fór fram í gær, 29. desember. Í þetta sinn var mótið haldið í Lyst, hinu magnaða veitingahúsi í Lystigarðinum hér á Akureyri. Sautján keppendur mættu til leiks og tefldu níu umferðir. Að vanda var baráttan hörð og lauk þannig að tveir stigahæstu keppendurnir urður efstir og jafnir. Sannkallaðir erkijólasveinar. Efstu menn:
Andri Freyr Björgvinsson (Skyrsleikir) 7,5
Rúnar Sigurpálsson (Gluggasníkir) 7,5
Áskell Örn Kárason 7
Sigurður Arnarson 6
Allmargir fengu svo fimm vinninga, m.a. Jakob Þór Kristjánsson, Skafti Ingimarsson, Sigurður Eiríksson, Stefán G Jónsson, Mikael Jóhann Karlsson og Smári Ólafsson.
Tveir gamilr félagar létu sjá sig og var vel fagnað. Auk þess mættu nokkrir til leiks sem ekki hafa sést á mótum félagsins áður. Segja má að skákmótahald í Lystigarpinum sé komið til að vera!
Ákveðið var að þátttökugjöldin 25.000 kr, rynnu óskipt til Súlna. Guðmundur Guðmundsson tók við gjöfinni f.h. Súlna úr hendi gjaldkera SA Smára Ólafssyni.
Af heimasíðu SA.
















