Margeir að tafli á Rilton. Mynd: Heimasíða mótsins/Lars OA Hedlund

Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2437) gerði jafntefli við sænska alþjóðlega meistarann Seo Jung Min (2502) í 4. umferð Rilton Cup sem fram fór í gær. Margeir hefur 3 vinninga og er í 10.-25. sæti. Margeir mætir sænska stórmeistaranum Jonathan Westerberg (2476) í fimmtu umferð sem fram fer í dag. Umferðin í dag hefst fyrr en venjulega eða kl. 11:15.

Alls tefla 136 keppendur í efsta flokki hátíðinnar og þar af 20 stórmeistarar. Margeir er nr. 35 í stigaröð keppenda.

Mótið á Chess-Results

Bræðurnir Adam (1693) og Jósef Omarssynir (1539) tefla í Rilton Elo sem er fyrir stigalægri keppendur. Þeir töpuðu báðir. Adam hefur 2 vinninga en Jósef hefur 1 vinning.

Mótið á Chess-Results. 

- Auglýsing -