Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2526) tapaði í 2. umferð Marienbad Open í Tékklandi fyrir tékkneska FIDE-meistaranum Richard Stalmach (2423). Hannes hefur 1 vinning.
Í þriðju umferð, sem fram fer á morgun, teflir Hannes við svissneska alþjóðlega meistarann Gabriel Gaehwiler (2408).
Hannes teflir í 10 manna flokki þar sem meðalstigin eru 2403 skákstig. Hannes er stigahæstur keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 15:15)
- Auglýsing -
















