Tata Steel-mótið hófst í Wijk aan Zee í Hollandi í gær. Í meistaraflokki (Masters) unnu Nodbirek Abdusattorov og Ding Liren sínar skákir gegn Richard Rapport og Gukesh. Öðrum skákum lauk með jafntefli og þar með skák Magnúsar Carlsen og Levon Aronian.
Önnur umferð fer fram í dag. Þá teflir Carlsen við þýska ungstirnið Vincent Keymer. Skák Abdusattorov og Fabiano Caruana verður að teljast áhugaverð.
Áskorendaflokkur (Challangers)
Abhimanyu Mishra og Max Varmerdam unnu í fyrstu umferð en öðrum skákum lauk með jafntefli. Sá síðarnefnd á glæsilegan hátt.
♟| #TataSteelChess Tournament 2023 round 1 ✅. pic.twitter.com/uFmJRrd52C
— Tata Steel Chess (@tatasteelchess) January 14, 2023
Ítarlega umfjöllun má finna á Chess.com.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13:15)
- Auglýsing -
















