Í gær hófst alþjóðlegt mót í Marianski Lazne í Tékklandi. Meðal keppenda er stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2526). Í fyrstu umferð sem fram fór í gær vann hann hinn sterka pólska FIDE-meistara Jakub Seemann (2389).
Önnur umferð fer fram í dag og þá teflir Hannes við tékkneska FIDE-meistarann Richard Stalmach (2423).
Hannes teflir í 10 manna flokki þar sem meðalstigin eru 2403 skákstig. Hannes er stigahæstur keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 15:15)
- Auglýsing -
















