Abdusattorov og MC á Johan Cruiff - vellinum í Amsterdam.

Það heyrir til tíðinda þegar Magnús Carlsen tapar í kappskák. Það heyrir til sérstakra tíðinda þegar heimsmeistarinn tapar tveimur í röð. Það gerðist í gær þegar hann tapaði fyrir Nodbirek Abdusattorov í fimmtu umferð Tata Steel-mótsins í Wijk aan Zee í gær. Í fyrsta skipti síðan í Norway Chess 2015 að það gerist! Umferðin í gær var tefld í húsnæði Johan Cruiff-leikvangsins í Amsterdam.

Áskorendaflokkur (Challangers)

Mustafa Yilmaz (2609), er efstur með 4 vinninga.

- Auglýsing -