Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2526) tapaði fyrir tékkneska FIDE-mistaranum Jakobo Kusa í áttundu og næstsíðustu umferð Marienbad Open í Tékklandi í gær. Lokuumferðin fór fram í morgun og gerði Hannes stutt jafntefli við kínverska alþjóðlega meistarann Chen Qi B (2484).
Hannes náði sér ekki á strik í mótinu. Hann endaði með 4½ vinning og í 6.-7. sæti.
Hannes tefldi í 10 manna flokki þar sem meðalstigin voru 2403 skákstig. Hannes var stigahæstur keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 15:15)
- Auglýsing -


















