Tvö unglingalandslið eru á leiðinni erlendis á næstum vikum. Annars vegar á NM ungmenna sem fram fer í Ósló dagana 17.-19. febrúar og hins vegar í lands/borgarkeppni sem fram fer á Írlandi 3.-5. mars nk.

NM ungmenna á sér langa sögu. Nærri hálfrar aldar gamla. Mótið hefur farið fram á hverju ári og mótin fóru meira að segja fram árlega á Covid-tímanum. Ísland sendir 10 fulltrúa til leiks. Við val liðsins sem var stuðst við skákstig 1. desember sl. Fyrir hönd Íslands tefla.

A-flokkur (u20)

  1. IM Vignir Vatnar Stefánsson (2466)
  2. FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2336)

B-flokkur (u17)

  1. Benedikt Briem (2096)
  2. Gunnar Erik Guðmundsson (1968)

C-flokkur (u15)

  1. Matthías Björgvin Kjartansson (1759)
  2. Mikael Bjarki Heiðarsson (1591)

D-flokkur (u13)

  1. Jósef Omarsson (1698)
  2. Sigurður Páll Guðnýjarson 1490)

E-flokkur (u11)

  1. Birkir Hallmundarson (1551)
  2. Örvar Hólm Brynjarsson (1252)

Liðsstjórar og þjálfarar eru Helgi Ólafsson og Ingvar Þór Jóhannesson.

Heimasíða mótsins

Lands/borgarkeppni á Írlandi

Skáksamband Ísland fékk nokkrum vikum boð um taka þátt í lands/borgarkeppni á Írlandi. Félagaskapur sem kenndur er við Chessmates. SÍ þáði það boð. Ákveðið var að senda lið til leiks en boðið gengi til þeirra sem ekki tefldu á NM ungmenna. Hvort að Íslandi standi til boða að taka þátt í þessu móti í framtíðinni er ekki ljóst en það væri óskandi. Við val liðsins var stuðst við skákstig 1. janúar.

Liðin sem taka þátt eru:

  • Berlín
  • Côte d’Azur-Var/ Mónakó
  • Ísland
  • Írland
  • London
  • París
  • Rotherdam
  • Sachsen-Anhalt

Um er að ræða liðakeppni. Tíu eru í hverju liði og þurfa tveir að vera í hverjum aldursflokki.

Eftirtaldir tefla fyrir Íslands hönd á Írlandi.

  1. U20: Stephan Briem (2141)
  2. U20: Arnar Milutin Heiðarsson (2020)
  3. U18: Benedikt Þórisson (1746)
  4. U18: Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson (1742)
  5. U16: Ingvar Wu Skarphéðinsson (1867)
  6. U16: Iðunn Helgadóttir (1690)
  7. U14: Tobías Matharel (1472)
  8. U14: Guðrún Fanney Briem (1457)
  9. U12: Engilbert Viðar Eyþórsson (1415)
  10. U12: Sigþór Árni Sigurgeirsson (1265)

Liðsstjóri og þjálfari eru Ingvar Þór Jóhannesson.

Heimasíða mótsins

 

 

 

 

 

 

- Auglýsing -