FIDE-meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352) fagnaði rétt í þessu skákmeistaratitli Reykjavíkur. Hann vann Jóhann Ingvason (2132) í lokaumferðinni sem fram fór í dag í lengstu skák umferðarinnar. Nafni hans,  Alexander Oliver Mai (2119), kom jafn honum í mark eftir góðan sigur á Vigni Vatnari Stefánssyni (2458). Aleksandr vann hins vegar mótið eftir oddastigareikning þar sem hann var hærri á Buchols-stigum.

Úrslit níundu umferðar

Vignir, Davíð Kjartansson (2293) og Benedikt Briem (2100) urðu í 3.-5. sæti með 6½ vinning.

Lokstaðan

Stigabreytingar

Eftirtaldir hækka um 20 stig eða meira á Skákþingi Reykjavíkur

Sigurdur Pall Gudnyjarson 109
Thorsteinn Jakob F Thorsteinsson 102
Adam Omarsson 99
Ketill Sigurjonsson 76
Sigurbjorn Hermannsson 50
Mikael Bjarki Heidarsson 46
Dawid Kolka 39
Josef Omarsson 38
Arnar Milutin Heidarsson 34
Engilbert Vidar Eythorsson 32
Benedikt Briem 30
Johann Ragnarsson 28
Jon Louie Thoroddsen 27

 

- Auglýsing -