Fjórum umferðum af sex er ný lokið á EM ungmenna hér í Osló, Noregi. Vignir Vatnar Stefánsson er að standa sig best af íslensku keppendunum og er hann efstur með 3,5 vinning af 4 í A-flokki.
Lítum yfir gang mála.
A-flokkur (u20)
Vignir Vatnar hefur tekið forystu í flokknum. Hann vann fyrri skákina í dag en slíkt hið sama gerði Alexaner Domalchuk-Jonasson. Þeir félagar mættust svo í 4. umferðinni í skák sem líklegast var úrslitaskák í flokknum.

Vignir hafði hvítu mennina sem oft getur haft úrslitaáhrif hjá jafn sterkum skákmönnum og þeir eru. Vignir hafði betur í endatafli í langri skák og er því í oddastöðu með 3,5 vinning í A-flokknum en Alexander er ekki langt undan með 3 vinninga. Það verður að teljast líklegt að við fáum íslenskt gull í A-flokki og líklegast tvo málma!
Skákir dagsins í A-flokki:
B-flokkur (u17)

Benedikt Briem er líklegast eini íslenski keppandinn fyrir utan þá félaga í A-flokki sem á raunhæfan möguleika á að ná í Norðurlandameistaratitil. Benedikt hefur ekki tapað skák en á móti gert full mikð af jafnteflum. Benedikt gerði jafntefli í báðum skákum dagsins og hefur nú 2,5 vinning af 4 en efstu menn hafa aðeins 3 vinninga þannig að mögulegar Benedikts felast í góðum sunnudegi þar sem sigur í báðum skákunum gæti gefið góða möguleika.
Gunnar Erik Guðmundsson má einnig una þokkalega vel við sitt en hann gerði jafntefli í báðum skákum dagsins og hefur 2 vinninga.
Skáki dagsins í B-flokki:
C-flokkur (u15)

Matthías og Mikael töpuðu báðir fyrri skák dagsins en gekk betur gegn Bresti og Róki frá Færeyjum þar sem 2 vinningar komu í hús.
Matthías hefur 2 vinninga en Mikael Bjarki 1,5 vinning
D-flokkur (u13)

Sigurður Páll er efstur Íslendinga í D-flokki. Hann hefur 2 vinninga eftir þokkalegan dag. Í fyrri skákinni sýndi hann mikla seiglu og smíðaði mátnet peði undir í endatafli. Í seinni skákinni varð niðurstaðan jafntefli en SPG átti vinning á einum stað.
Jósef hefur ekki átt sitt besta mót og hefur 1 vinning eftir tap í báðum skákum dagsins. Andstæðingar Jósefs hafa þó verið í erfiðari kantinum.
E-flokkur (u11)

Birkir Hallmundarson hefur 2 vinninga í E-flokki. Hann tapaði fyrri skák dagsins en vann þá seinni.
Örvar Hólm Brynjarsson hefur 1,5 vinning en á meira inni. Hann hefur misst tvær kolunnar stöður niður í lokin eftir að hafa teflt þær eins og herforingi. Hann sýnir hvað í honum býr á morgun.
Góður andi er í hópnum og eftir seinni umferðina og fyrir kvöldmat var skellt í hópleik þar sem keppt var í skemmtilegum leik sem nefnist „Shuffleboard“. Eftir skemmtilega baráttu milli krakka, fullorðinna og liðsstjóra höfðu þeir félagar Vignir Vatnar og Benedikt Briem sigur úr býtum.

Snilldin var slík að áhorfendur hópuðust að borðinu á köflum 😉

Úrslit ráðast á morgun, tefldar eru tvær umferðir og hefjst þær klukkan 8 og 13 að íslenskum tíma.

















