Á morgun, föstudag hefst hér á Írlandi liðakeppni á milli borga/landa sem ber heitið Chess Mates. Átta sveitir víðsvegar að úr Evrópu eru mættar til leiks til að etja kappi. Teflt er á 10 borðum þar sem 2 eru í U20, 2 í U18 og koll af kolli niður í U12. Liðunum átta er skipt í tvo riðla, allir keppa við alla og svo verður teflt um sæti um helgina.
Ísland er í riðli með liðum frá Sachsen-Anhalt, Rotterdam og Cote Azur-Monaco
Íslenska liðið skipa:
U20
Stephan Briem
Arnar Milutin Heiðarsson
U18
Benedikt Þórisson
Þorsteinn Jakob Þorsteinsson
U16
Ingvar Wu Skarphéðinsson
Iðunn Helgadóttir
U14
Guðrún Fanney Briem
Tóbías Matharel
U12
Sigþór Árni Sigurgeirsson
Engilbert Viðar Eyþórsson
Liðsstjóri er Ingvar Þór Jóhannesson
Mót þetta er nýtt af nálinni hjá Skáksambandinu og er hugsað sem verkefni fyrir þá efnilegu krakka sem rétt missa af Norðurlandamótinu. Ef vel til tekst er þetta vonandi verkefni sem er komið til að vera! ChessMates mótin eru haldin 1-2 á ári og skipt er bróðurlega á milli hvar mótin fara fram, hafa þau farið fram allt frá París/Monaco yfir í Murmansk!
Tímamörk eru 90 mínútur og 30 sekúndur á alla skákina. Teflt er klukkan 10:00 og 15:00 á föstudag og laugardag og svo úrslit 09:30 á sunudaginn.
Mótið á chess-results
















