Davíð vann Yngva í gær. Mynd: Ríkharður Sveinsson.

Þriðja umferð Skákmóts öðlinga fór fram í gær. Alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson (2300) er efstur með fullt hús en hann lagði Yngva Björnsson (1780) að velli í gær. Geir Rögnvaldsson (1583), Lenka Ptácníková (2113) og Jóhann Jónsson (1761) eru í 2.-4. sæti með 2½ vinning.

Staðan á Chess-Results. 

Geir Rögnvaldsson vann Jóhann Ingvason í gær. Mynd: RS

Geir gerði sér lítið fyrir og vann Jóhann Ingvason (2132) þrátt fyrir 550 skákstigamun. Lenka vann Brynjar Bjarkason (1571) og Jóhann lagði Þór Valtýsson (1944) að velli.

Úrslit 3. umferðar á Chess-Results. 

- Auglýsing -