Við minnum á skákæfingu fullorðinna klukkan 19:30 í kvöld í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Fyrirlesari kvöldsins verður skákmeistarinn, mótshaldarinn og skákdómarinn Omar Salama.

Omar Salama fyrirlesari kvöldsins, ásamt Ingvari Þór og fleiri félögum í TR

Nánari upplýsingar um æfingarnar:

Skákæfingar fyrir fullorðna, nánar tiltekið 16 ára og eldri, fara af stað að nýju nú á nýja árinu. Byrjendur eru velkomnir en miðað er við iðkendur ca. undir 2000 stigum.

Haldnir eru hálfsmánaðarlegir fyrirlestrar. Æfingarnar hefjast klukkan 19:30 og þeim lýkur um klukkan 21:30. Fyrirlestur verður í klukkutíma og teflt í klukkutíma. Ingvar Þór Jóhannesson mun hafa yfirumsjón með æfingunum en einnig verða fengnir gestafyrirlesarar. Ekki er tekið við skráningum í þessar æfingar, heldur mun kosta 1000kr. á hvern fyrirlestur og eru allir velkomnir.

Fyrirlestrarnir fara fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12.

Næsta æfing árið 2023 verður fimmtudagskvöldið 30. mars.

Skákmenn geta skráð sig á póstlista æfinganna þar sem sendur verður tölvupóstur hálfsmánaðarlega með áminningu um æfingar vikunnar.

Skráning á póstlista

Dagskráin það sem eftir líður vors:

30. mars 

13. apríl 

27. apríl 

11. maí 

25. maí 

- Auglýsing -