Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið í boði Kviku og Brim er nú hafið í Hörpu. Vignir Vatnar Stefánsson var hylltur sem nýjasti stórmeistari Íslendinga af Friðrik Ólafssyni og í kjölfarið lék Dagur B. Eggertsson fyrsta leik mótsins fyrir andstæðing Vasyl Ivanchuk (2664), stigahæsta manns mótsins, á efsta borði.
Úrslit fyrstu umferðar voru að mestu eftir bókinni en þó var nokkuð um óvænt úrslit. Evrópumeistari U12 frá Póllandi Patryk Cieslak (2207) lagði t.a.m. einn stigahæsta keppanda mótsins, hinn brasilíska Alexander Fier (2606) að velli. Tvítugur norskur FIDE meistari Andre Nielsen (2201) lagði hinn vaska Víking Grzegorz Gajewski (2587) sem verða einnig að teljast óvænt úrslit.
Íslensku stórmeistararnir komust að mestu klakklaust frá fyrstu umferðinni. Þeir Hjörvar Steinn Grétarsson, Vignir Vatnar Stefánsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Þröstur Þórhallsson og Guðmundur Kjartansson unnu allir sínar skákir en Jóhann Hjartarson varð að sætta sig við jafntefli með svörtu mönnunum gegn bandarískum alþjóðlegum meistara.
Af góðum úrslitum Íslendinga má nefna að strákarnir úr U25 æfingahópnum, Báður Örn Birkisson (2142) og Benedikt Briem (2127), gerðu jafntefli gegn mun stigahærri andstæðingum. Bárður gegn P Shyyamikkhil (2477) og Benedikt gegn alþjóðlega meistarnum Jonah Willow (2459).
Segja má að línur skýrist mjög hratt á mótinu en tvöföld umferð fer fram á morgun, fimmtudag. Fyrri umferðin hefst klukkan 09:00 og sú seinni klukkan 16:00.
Vel er fylgst með mótinu á netinu og t.d. er bandaríska Twitch stjarnan Alexandra Botez með beinar útsendingar frá sinni skák og fylgdust 20.000 manns í einu með skák hennar. Skammt á eftir kom hin sænska Anna Cramling en 11 þúsund manns fylgdust með hennar skák. Metþátttaka er á mótinu eins og áður hefur komið fram, yfir 400 keppendur en fyrra metið var rétt rúmlega 270 keppendur!






Mótið á chess-results
Útsendingar skáka á Chess.com
Útsendingar skáka á Chess24
Áhrifavaldar sem sýna frá mótinu:
https://www.twitch.tv/annacramling
https://www.twitch.tv/botezlive
https://www.twitch.tv/gingergm
https://www.twitch.tv/thebelenkaya
- Auglýsing -















