Fyrstu skákinni í heimsmeistaraeinvígi þeirra Ian Nepomniachtchi og Ding Liren lauk með jafntefli í 49 leikjum. Nepo náði að setja nokkra pressu á Ding en sá kínverski varðist vel eins og hans er von og vísa.
Nepo hóf taflið á 1.e4, „Best by test“ eins og Bobby Fischer sagði. Nepo er að eðlisfari kóngspeðsskákmaður. Ding Liren svaraði með 1..e5 eins og hann hefur gjarnan gert. Í raun kom ekkert á óvart í kjölfarið, Nepo hefur teflt Skotann, Ítalann og Spánverjann og valdi hinn klassíska Spánverja í þetta skiptið, ein elsta og virtasta skákbyrjunin, skýrð eftir prestinum Ruy Lopez.
6.Bxc6!? var fyrsta óvænta útspilið. Hvítur seinkar því að tefla uppskiptaafbriðgið, tapar í raun leik en vill á móti meina að svartur hafi valið uppstillingu sem er ekki best gegn uppskiptaafbrigðinu.
Skákskýrendur á netinu fór fyrsta að æsast upp í eftirfarandi stöðu:
Nepo lék hér 14.Rf5 sem er þokkalegur leikur en tölvurnar vildu sjá 14.h3!? sem setur svartan í smá bobba þar sem 14…Dxd4 er svarað með 15.Rd5!
Flott taktík og það hefði verið erfitt fyrir Ding að byrja skákina á þennan hátt.
Svartur hefði þess í stað orðið að finna 14…Hae8 til að reyna að halda í horfið.
Hvítur hélt aðeins betra tafli í kjölfarið en svartur fór að lenda í vandamálum þegar peð hans voru öll uppstillt á svörtum reitum á drottningarvæng, samlit biskup hvíts.
#NepoDing #WorldChessChampionship Ding in serious trouble. Black’s queenside pawns are weak, and there is no counterplay. Time shortage an issue too. pic.twitter.com/ZwFeiUgepV
— Daniel King (@DanielKingChess) April 9, 2023
Ding Liren náði þó að finna leiðir til að halda í horfið fyrir svartan, útreikningar gjarnan verið styrkur Ding. Kínverjinn var þó með töluvert verri tíma og í vandræðum og viðurkenndi eftir skákinni að honum hefði liðið furðulega við borðið.
Niðurstaðan að lokum, jafntefli
Game 1 of the Nepo-Ding World Championship match ends in a draw. 13 to go! https://t.co/7EMyXmi9tI#NepoDing #c24live pic.twitter.com/6IbjdBjWJa
— chess24.com (@chess24com) April 9, 2023
Skákin í heild:
Vel tefld skák skv. tölvunum:

Fyrsta skákin skýrð á engilsaxnesku:
Frábærar skýringar Dubov:
- Heimasíða heimsmeistaraeinvígisins
- Beinar lýsingar (FIDE)
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar lýsingar (Chess.com)
















