Það hefur farið lægra en oft áður að heimsmeistaraeinvígi í skák er að hefjast. Það hefst nánar tiltekið í dag kl. 9 þegar Kínverjinn Ding Liren og Rússinn Ian Nepomiachtchi mætast í fyrstu einvígisskákinni af fjórtán.

Bein útsending frá einvíginu á vegum FDIE hefst hálfíma áður en taflmennskan hefst. Lýsendur verða Vishy Anand, Daniil Dubov og Irina Krush.

Chess.com er einnig öflugt lið í sínum skýringum.

Bleiki fíllinn er fjarvera sterkasta skákmanns heims, Magnúsar Carlsens, sem kaus að verja ekki titilinn.

- Auglýsing -