Rússinn Ian Nepomniachtchi hefur tekið forystuna í heimsmeistaraeinvíginu í Astana í Kazaksthan. Nepo hafði svart og vann í 29 leikjum eftir vægast sagt óvænt útspil strax í 4. leik hjá Ding Liren.
Leikurinn 4.h3 er nánast nýjung. Enginn sterkur skákmaður hefur nokkurn tímann leikið þessu í kappskák. Ding viðurkenndi eftir á að þetta væri hugmynd aðstoðarmanna hans og kemur þá aðeins einn til greina, Richard Rapport.
Viðbrögð Irínu Krush og Vishy Anand má sjá hér að neðan:
"WOW! Is that pawn to h3?" – Irina Krush
Irina Krush on an extremely rare choice so early in the game, on the 4th move; and it seems to have surprised, apart from Irina, also Ian Nepomniachtchi. #NepoDing pic.twitter.com/p6vNezJFVk
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 10, 2023
Vafalítið voru einhverjar hugmyndir bakvið þennan leik en augljóst er að hér er á ferðinni 100% biðleikur. Leikurinn h3 undirbýr í raun ekki neitt og kemur ekki í veg fyrir neitt. Ákveðin yfirlýsing og kannski býr að baki að Ding Liren sagði á blaðamannafundi að hann teldi sig skilja skák betur en Ian Nepomniachtchi.

Nepo brást við með því að drepa á c4, móttekið drottningarbragð. Þessi h3 leikur kostaði hvítan í raun lítið en fyrsta augnablikið sem svartur fór að taka völdin var hér:
Hér á hvítur að leik 12.Rxc5 með eðlilegri stöðu sem er örlítið betri á hvítt. Þess í stað lék Ding 12.Rxf6 sem gefur svörtum trausta stöðu eftir 12…gxf6. Eftir 13.e4 átti svartur svo 13…c4 og stendur líklega nokkuð betur!
Ding lenti í vandræðum með rými sitt og mennina og plan hans með 17.Bd3? reyndist misráðið. Biskupinn þurfti að hörfa skömmu síðar og Ding kominn í stórkostleg vandræði eftir sterkan leik Nepo, 18…f5!
Þetta peð má ekki taka 19.exf5? Hxd4!! 20.Rxd4 Hxg2+ 21.Kf1 Hxf2+! 22.Kxf2 Dh2+ 23.Ke3 Bh6#
Stórkostlegt mát eftir tvöfalda hróksfórn þar sem hvítu kallarnir eru hreinlega bara fyrir!

Nepo leið greinilega vel eftir …f5 leikinn eins og hann sagði á fréttamannafundi:
“After I played …f5, it is clearly very, very shaky for White; he might have something like d5. And then, the position more or less plays itself; I threw the pieces in the centre, and it was enough” – Ian Nepomniachtchi on Game 2. #NepoDing pic.twitter.com/GeyxyakhUD
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 10, 2023
Nepo var svo ekkert að stíga nýtt af bensíngjöfinni og tefldi af fítonskrafti.
Hér fórnaði hann skiptamun 20..Hxg5!! og svörtu mennirnir urðu einráða á borðinu. C-peð svarts flaug svo upp borðið og Ding Liren laut í dúk í 29. leik.
Viðbrögð frá Twitter
Stórmeistarinn Simon Williams hefur áhyggjur af taugum Ding og vonar að hann nái sér á hvíldardeginum.
Chess will often come down to what mental state the player(s) are in. It's clear that Nepo is in another league at the moment.
Let's hope Ding uses his rest day wisely. #NepoDing— Simon Williams (@ginger_gm) April 10, 2023
Stórmeistarinn Jonathan Levitt saknar Carlsen og er ekki hrifinn af gæðunum hingað til.
Ding Liren seems to be playing very poorly in game two. The match is lacking quality so far, as well as lacking Carlsen.
— Jonathan Levitt (@JonathanLevitt7) April 10, 2023
GM Neiksans vill meina að hugmyndin hafi kannski ekki verið slæm en mögulega hugarástandið.
I think the 4.h3 idea is interesting but one thing I've learned from my own experience – improvising while not feeling well or comfortable, often tends to end with a disaster. You need to be in the right state of mind. #NepoDing https://t.co/fD6r6lEeza
— Arturs Neiksans (@GMNeiksans) April 10, 2023
Hér er svo skákin:
„Einkunnaspjald“ Chess.com segir sína sögu um þessa skák!

- Heimasíða heimsmeistaraeinvígisins
- Beinar lýsingar (FIDE)
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar lýsingar (Chess.com)














