Ding Liren er heldur betur að vakna og sýna sitt rétta andlit í heimsmeistaraeinvíginu í Astana, Kazakshtan. Eftir erfiðara byrjun hefur Ding nú jafnað leikinn með góðum sigri í fjórðu skákinni í kjölfarið á góðri taflmennsku og jafntefli í þriðju skákinni.

Ding tapaði í annarri einvígisskákinni eftir að hafa hafið taflið með 1.d4. Hann ákvað að skipta yfir í enska leikinn, 1.c4, í skák dagsins og úr varð skemmtileg skák með miklu strategísku ójafnvægi.

Greinilegt er að aðstoðarmaður Ding, Richard Rapport, hefur haft sitt að segja í byrjanaundirbúningi. Staðan eftir 10 leiki hafði aðeins einu sinni komið upp áður, og einmitt í skák Richard Rapport!

Ding fékk sterkt peðamiðborð og varð það enn sterkara þegar hvítur fórnaði peði með c5!? og ýtti í kjölfarið miðborðspeðum sínum lengra.

Ian Nepomniachtchi tók stóra ákvörðun í 23. leik.

Hér ákvað hann að lífga við riddarann á b7 með því að leika 23…f6?! en sá leikur leyfir auðvitað valdað frípeð á e6, algjört stórveldi.

Staða Nepomniachtchi varð í kjölfarið strategískt mjög erfið. Tölvurnar halda haus en í „mannlegu“ tafli er svarta staðan erfið og Nepo missti þolinmæðina kannski of snemma með 29…Rd4?

Ding svaraði að bragði 30.Hxd4! og riddari hvíts er á leiðinni á súper reit, Rd2-b3-d4-f5 og staða svarts varð í kjölfarið gjörtöpuð.

Einkunnaspjaldið:

Skákskýringar á engilsaxnesku:

Menn eru hrifnir „bromance“ þeirra Ding og Rapport

Frídagur er á morgun en 5. og 6. einvígisskákin fara svo fram um helgina. Skákirnar í Astana hefjast alltaf klukkan 09:00 að íslenskum tíma.

- Auglýsing -