Ding Liren lagði í dag Ian Nepomniachtchi að velli í bráðabanaeinvígi, 2,5-1,5. Áður höfðu þeir teflt 14 kappskakir og skildu þar jafnir 7-7. Leiðir skildu ekki fyrr en í lokaatskákinni þar sem Ding með svörtu mönnunum vann mikinn seiglusigur.
Ding Liren tekur við krúnunni af Magnus Carlsen sem var 16. heimsmeistarinn eftir að hafa náð krúnunni af Viswanathan Anand árið 2013. Magnus hafði svo varið titilinn 2014 gegn Anand, 2016 gegn Sergei Karjakin, 2018 gegn Fabiano Caruana og loks 2021 gegn Ian Nepomniachtchi.
Segja má að leið Ding að titlinum hafi verið sannkallað öskubuskuævintýri. Stríðið í Úkraínu hafði þar mikil áhrif. Rússinn Sergei Karjakin lýsti yfir stuðningi við stríðið á sínum tíma og var í kjölfarið settur í bann af alþjóðlega skáksambandinu. Það þýddi að stigahæsti keppandinn sem ekki hafði unnið sér inn rétt til að tefla á Áskorendamótinu myndi fá sæti á mótinu. Þar stóð Ding vel að vígi enda stigahæstur en átti hinsvegar eftir að uppfylla lágmarkskröfur um að tefla 30 kappskákir á tímabilinu maí 2021 til maí 2022. Hafði Kínverjinn aðeins teflt 4 kappskákir á þessum tíma sökum covid-faraldursins. Kínverska skáksambandið reddaði viðburðum fyrir Ding með stuttum fyrirvara og hann rétti náði skákunum og fékk sætið.
Á áskorendamótinu náði Ding með frábærum endaspretti að stela öðru sætinu af bandarísku stórstjörnunni Hikaru Nakamura með því að leggja hann að velli í lokaumferðinni.
Eftir Áskorendamótið tilkynnti Carlsen svo að hann myndi afsala sér krúnunni og því ljóst að sigurvegari Áskorendamótsins, Ian Nepomniachtchi, myndi etja kappi við Ding Liren sem endaði þar í öðru sæti.
Heimsmeistaraeinvígið byrjaði svo brösulega hjá Ding. Hann tapaði skák snemma og virtist eiga mjög erfitt með sviðsljósið og taugarnar og viðurkenndi það. Hann eyddi miklum tíma í hvíldarherbergi keppenda í stað þess að sitja við borðið. Í fjórðu skákinni náði Ding að vinna skák til baka og virtist hafa náð tökum á taugunum.
Ding lenti svo tvisvar í viðbót undir í einvíginu en kom alltaf til baka og hafði loks betur í atskákinni með mjög þéttri og góðri taflmennsku.
Ding er fyrsti Kínverjinn til að vinna heimsmeistaratitilinn í skák.
Förum aðeins yfir gang mála í bráðabananum í dag.
Í fyrstu skákinni fékk Ding ágætis frumkvæði með hvítu en Nepomniachtchi fann gott mótspil og kom með fyrstu „snilldina“ þegar hann skildi drottningu sína eftir í uppnámi eftir 25…axb6!!

Ding mátti ekki taka drottninguna vegna 26…Rf3+ og tapar liði eða verður mát. Nepo náði svo fljótlega þrákskák og fyrsta skákin jafntefli.
Ding hélt nokkuð auðveldlega jafntefli í Spánverjanum sínum í annarri bráðabana skákinni. Nepo fékk eitthvað betra en aldrei nægjanlega mikið til að setja Ding í vandræði.
Ding náði að vinna peð í þriðju skákinni en Nepo náði að skipta upp þannig að mislitir biskupar væru á borðinu og Ding átti aldrei vinningsmöguleika í skákinni
Þá var komið að fjórðu og úrslitaskákinni. Nepo með hvítt og flestir hefðu veðjað á hann í þessari stöðu. Ef leikar yrðu jafnir hefðu þeir farið í áframhaldandi 4 skáka einvígi með styttri tímamörkum.
Enn var spænski leikurinn tefldur. Ding tefldi mjög vel og staðan í dýnamísku jafnvægi lengst af. í 46. leik kom eiginlega vendipunkturinn að mörgu leiti. Nepo skákar þá á e4 en þeir höfðu endurtekið leiki 44.De4+ Kg8 45.Dd5+ Kh7 46.De4+. Hér hefðu margir sætt sig við skiptan hlut með svörtu en Ding Liren ákvað að setja hrók sinn í hættulega leppun. 46…Hg6!!?
Magnus hafði í lauslegri þýðingu þetta að segja „Sjálf-leppar sig fyrir ódauðleikann!“
Self-pinning for immortality. Congrats Ding!! https://t.co/pswA5g6bz9
— Magnus Carlsen (@MagnusCarlsen) April 30, 2023
Skákin var þó engan veginn búinn en þarna kom Ding með ákveðna yfirlýsingu, hann ætlaði að vinna þennan titil! Nepo brást illa við og peð Ding á drottningarvæng komust á flug.
Nepo fékk séns á að bjarga sér í 59. leik. Hér hefði 59.Bxg7!! tryggt hvítum þráskák. Þess í stað lék Rússinn 59.Dc7? sem er tapleikur. Ding sigldi titlinum svo í höfn með öruggri taflmennsku það sem eftir var skákar.
The final moments of the match. The emotions of the players say it all. #NepoDing pic.twitter.com/yllKJes14j
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 30, 2023
Sögulegur sigur í höfn. Ding virðist deila áhuga á knattspyrnu ef marka má svar hans við spurningu um hvað væri það fyrsta sem hann myndi gera sem heimsmeistari.
Ding Liren: "I want to go to Turin to see a game of Juventus, my favourite club!" #NepoDing pic.twitter.com/2BaHyZj0vw
— chess24.com (@chess24com) April 30, 2023
- Heimasíða heimsmeistaraeinvígisins
- Beinar lýsingar (FIDE)
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar lýsingar (Chess.com)
















