Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir

Íslensku keppendurnir  í opna flokknum í České Budějovice voru taplausir í 6. umferðinni, góður dagur! Hallgerður vann sína skák á Korsíku en Hilmir tapaði fyrir Sengupta hinum djúpa í GM flokknum í České Budějovice

Alexander Oliver Mai skákmeistari TR 2022

Alexander Oliver Mai (2137) var orðinn efstur Íslendingana með 4 vinninga af 5 og hann mætti alþjóðlega meistaranum Piotr Dobrowolski (2417) sem lagði Bárð Örn að velli í gær. Sá pólski kom Alexander líklegast á óvart í byrjuninni þegar hann beitti hinum svokallaða „ungverska dreka“ sem er nýlegt blæti hjá mönnum. Sjá myndband frá IM Miodrag Perunovic fyrir neðan skákina.

Sá pólski fékk heldur betra tafl, vann peð og virtist standa vel að vígi. Líklegast „redúseraði hann primitíft“ eins og það var kallað í gamla daga, semsagt skipti of glatt upp á manni í lokin og Alexander náði þráskák í drottningarendataflinu. Góð úrslit hjá honum. Alexander hefur nú 4,5 vinning af 6 mögulegum.

Vignir Vatnar Stefánsson (2487) er orðinn jafn Alexander með 4,5 vinning af 6. Vignir vann skák dagsins gegn Þjóðverjandum Ruben Lutz (2208). Vignir fékk ekkert sérstaka stöðu úr byrjuninni og hefði getað lent í smá vandræðum hefði Þjóðverjinn fundið 17…Rfe4! …allavega samkvæmt tölvuapparörtum. Hinsvegar er ekki hlaupið að því að sjá hví sú leið er svona góð á svart og sá þýski sá það ekki heldur.

Eftir drottningarkaup fékk Vignir mun þægilegra tafl og má segja að Þjóðverjinn hafi redúsarð primitíft. Vignir yfirspilaði andstæðing sinn og liðstap eða ný drottning var raunin í lokin.

Benedikt Briem (2127) tefldi fína skák gegn alþjóðlega meistaranum Vitezslav Priehoda (2257) með svörtu. Benedikt vann peð í miðtaflinu en Tékkinn slapp með skrekkinn og náði jafntefli.

Benedikt er þá kominn með 4 vinninga af 6.

Bárður Örn Birkisson (2199) er einnig kominn með 4 vinninga. Hann mætti hinni ísraelsku Ludmilu Tsifanskayu (1964), þeirri sömu og mætti Vigni í fyrstu umferð. Í skák dagsins veitti hún öllu minni mótspyrnu og lék illa af sér í aðeins verri stöðu með 18…g5??

David Kolka (1938) er einnig kominn með 4 vinninga. Hann hefur nú unnið þrjár skákir í röð. Tékkinn Milan Borkovec (2156) reyndi að halda aftur af okkar manni og gekk þokkalega framan af miðtafli. David náði að rétta úr kútnum og fá betra en líklega var staðan orðin jafntefli aftur í lokin þegar Milan lék sig í mát.

Björn Hólm Birkisson (2137) gerði jafntefli við malasíska WCM Jia Ru Sim (1931). Segja má að hvorki hvítt né svart hafi náð að koma höggi á andstæðinginn og jafntefli rökrétt úrslit í skákinni.

Aron Þór Mai (2037) gerði jafntefli við Karin Novomeska (1794) frá Slóvakíu. Aron var enn eina ferðina að fá góða stöðu, jafnvel unnið tafl en nær ekki að klára. Hér er æfingaleysið klárlega að sýna sig.

Chess-Results

Beinar útsendingar

Hilmir Freyr Heimisson (2404) mætti hinum djúpa, GM Deep Sengupta (2473) frá Indlandi. Þeir mættust einnig um daginn, á tefldu þeir franska vörn en nú opnaði Hilmir með 1.d4. Benoni-vörn kom á borðið. Í flóknu miðtafli varð miðborðspeð Hilmis strandaglópur á d6 og Sengupta náðu með góðu hópefli að umkringja það. Riddarar svarts stóðu svo fyrir öðru hópefli í kringum hvíta kónginn í lokin og frekari barátta tilgangslítil.

Ekki gott mót hjá Hilmi sem hefur 1,5 vinnig af 6 en hann nær vonandi að rétta úr kútnum í lokaumferðunum.

Chess-Results

Beinar útsendingar

Landsliðskonan Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1942) náði góðum úrslitum í umferð dagsins. Hún lagði Savin Dias (2068), ungum Englendingi.  Hallgerður hefur 3 vinninga af 7 og er að fá fína æfingu, keppendur á svipuðu stigabili og búast má við á næsta EM landsliða.

Heimasíða mótsins

Chess-Results

Beinar útsendingar (efstu borð)

Josef Omarsson (1710) mun hefja taflmennsku á morgun í Paracin í Serbíu. Josef er númer 131 af 132 keppendum í styrkleikaröð og ljóst að hann fær mikla og góða reynslu úr þessu móti.

Chess-Results

Þeir félagar Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Kjartansson (2429) hefja svo leik á laugardaginn í opnu móti í Valencia á Spáni.

Chess-Results

 

 

 

 

- Auglýsing -