Heimsmeistaraeinvígi kvenna hófst í gær í Shanghai í Kína. Þar tefla Ju Wenjun (2564), núverandi heimsmeistari kvenna, og áskorandinn Lei Tingjie (2554). Báðar frá Kína. Alls tefla þær 12 skákir og fer einvígið fram 5.-23. júlí.

Tveimur fyrstu skákunum lauk með jafntefli. Ítarlega umfjöllunum um hana má finna á Chess.com.

Einnig varð jafntefli í dag í fjörugri skák.

Frídagur er á morgun. Þriðja skákin fer fram laugardaginn. Tilvalið fyrir árrisula þvi skákirnar hefjast kl. 7 á morgnana.

- Auglýsing -