Vignir Vatnar og Benedikt Briem eru á toppnum ásamt Aleksandr.

Íslensku keppendurnir  í opna flokknum í České Budějovice voru nokkurn veginn „á pari“ í umferð dagsins. Hilmir gerði jafntefli í sinni skák í lokaða GM flokknum og Hallgerður tapaði á Korsíku

Vignir Vatnar Stefánsson (2487) fékk ekki beint skemmtilegustu pörunina en hann fékk svart á fóstbróðir sinn, Benedikt Briem (2127). Benedikt var ekkert að rugga bátnum með hvítu mönnunum og hleypti Vigni lítið áleiðis. Þeir félagar sömdu í 28. leik.

Alexander Oliver, unglingameistari Íslands og meistari Skákskóla Íslands 2021. Mynd: IÞJ

Vignir og Benedikt hafa því 3,5 vinning af 5. Það þýðir að Alexander Oliver Mai (2137) er orðinn efstur Íslendingana með 4 vinninga af 5 eftir sigur í dag. Hann mætti Jan Slampa (2227) frá Tékklandi með svörtu. Alexander beitti Petroffsvörn í stað Najdorf sem hann teflir nánast alltaf.

Andstæðingur Alexanders fór í ótímabærar aðgerðir gegn kóngi svarts en svartur hafði teflt mjög traust. Fljótlega fylgdu í kjölfarið taktísk mistök og fínn sigur hjá „Lexa“

Bárður Örn Birkisson (2199) var einnig með 3 vinninga og hefði getað náð Alexander. Hann varð hinsvegar að lúta í dúk gegn pólska alþjóðlega meistaranum Piotr Dobrowolski sem var ekki í skapi til að taka neina fanga í sikileyjarvörninni og bauð upp á glanspartý,

Björn Hólm Birkisson (2137) gerði jafntefli við þýska skákmanninn Rene Lutz (2005). Eftir vafasamar aðgerðir hjá Birni var Rene kominn með mun betri stöðu. Hann hélt upp á það með því að umsvifalaust bjóða upp á drottningarkaup og svo jafntefli. Björn tók því með verra tafl. Það virðist vera holskefla af skákmönnum á þessu móti sem eru „fæddir hræddir“ … því ber að fagna fyrir okkar menn! Björn hefur 3 vinninga eins og Bárður bróðir hans.

David Kolka (1938) er einnig kominn með 3 vinninga. Hann lagði tékkneska skákmanninn Tomas Pisar (1749) sem er með 0,5 af 3 í síðustu umferðum gegn íslenskum víkingum og væntanlega kominn með nóg af þeim! Pisar tók sér of mikinn tíma í sínar aðgerðir og Kolka-vélin tók yfir frumkvæðið og tók kennslustund í taktík í lokin.

Aron Þór Mai (2037) stóð til vinnings en náði ekki að klára dæmið gegn Martin Policar (1561), efnilegum 11 ára Tékka. Aron missti stöðuna í mislita biskupa og jafntefli niðurstaðan.

Chess-Results

Beinar útsendingar

Hilmir Freyr Heimisson (2404) tefldi mjög fína skák með svörtu gegn FIDE meistaranum Stepan Hrbek (2317) fæddum 2006. Eftir mikla baráttu yfirspilaði Hilmir andstæðing sinn og eftir skemmtilega skiptamunsfórn virtist vinningurinn vera í augsýn. Þá fór eitthvað úrskeiðis í endataflinu og Stepan náði að bjarga sér fyrir horn í jafntefli. Önnur svekkjandi úrslit hjá Hilmi sem hefur ekki náð sér jafn vel á strik eins og í fyrra mótinu.

Chess-Results

Beinar útsendingar

Landsliðskonan Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1942) tapaði gegn Alexander Pak (2177) í umferð dagsins. Drottningarendatafl þar sem Pak náði svíðing.

Í gær gerði Hallgerður jafntefli við slóvensku landsliðskonunni Teju Vidic (2099). Teja var mun stigahærri fyrri fáeinum árum með 2240+ en lenti í hræðilegu móti, fékk 0 af 9 og hefur ekki náð að jafna sig alveg eftir það. En styrkleikinn er augljóslega hærri en stigin!

Ritstjórn heyrði aðeins í Hallgerði, sem er einmitt mjög ánægð með aðstæður á mótinu. Skákir eru ekki í beinni né slegnar inn en Hallgerður tjáði okkur að hún hefði ákveðið að taka slaginn í ítalska leiknum þrátt fyrir að Teja væri augljóslega mjög vel stúderuð þar. Fyrstu 15-16 leikirnir voru tefldir hratt af þeirri slóvensku en Hallgerður náði að finna þægilega leið og fékk aðeins betra en ekki nóg til að tefla til vinnings og jafntefli niðurstaðan.

Chess-Results uppfærist seint hjá Frökknunm sem hefur aðeins ruglað ritstjornina og því er betra að sjá úrslit á heimasíðu mótsins.

Heimasíða mótsins

Chess-Results

 

 

 

 

 

- Auglýsing -