Georgíski „fyrrverandi ofurstórmeistarinn“ Baadur Jobava (2578) stöðvaði sigurgöngu Guðmundar í Valencia á Spáni. Hannes Hlífar gerið jafntefli í sinni skák en andstæðingur Josefs virðist ekki hafa mætt til leiks í Serbíu.

Íslensku landsliðsmennirnir Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Kjartansson (2429) sitja báðir að tafli í Valencia á Spáni þessa dagana. Guðmundur hafði 6/6 fyrir umferðina en Hannes 5/6.
Guðmundur mætti hinum ógnarsterka og frumlega skákmanni Baadur Jobava. Georgíumaðurinn beitti kóngspeðinu og Guðmundur valdi sikileyarvörnina. Jobava beiti Grand Prix árásinni. Hvítur fékk fín sóknafæri og lykilstaðan var líklega hér.
Hér lék Guðmundur 20…Hac8? í stöðu sem var vel teflanleg þó hún sé betri á hvítt. Jobava sá sér leik á borði og lék 21.Rg5! Dd6 og 22.Dxc5!
Eftir 22…Dd7 23.g4 Bxe4 missti Guðmundur e.t.v. af endurvinnslu á sama trikki þ.e. að notfæra sér riddaragaffalinn á e6 reitnum 24.Dd4!
Kall í hafið og eftirleikurinn vafðiast ekki fyrir honum Baadur. Lokaumferðirnir verða mikilvægar hjá Guðmundi í baráttunni um toppsætin.
Hannes hafði svart gegn enska alþjóðlega meistaranum Harry Grieve (2449). Hannes beitti Berlínarvörninni gegn kóngspeði þess enska. Hannes fékk trausta stöðu og var peði yfir og stóð betur. Í kjölfarið lenti Hannes í smá beyglu með hrók sinn og það var nægjanlegt mótspil og var hvítur var jafnvel með smá færi á tímabili. jafntefli lokaniðurstaðan.
Pörun áttundu umferðar liggur ekki enn fyrir en verður uppfærð hér þegar hún liggur fyrir.
UPPFÆRT: Guðmundur fær hvítt á spænska stórmeistarann Julen Luis Arismendi Martinez (2501). Hannes fær einnig hvítt gegn kúbverska alþjóðlega meistaranum Ernesto Fernandez Guillen (2467).

Josef Omarsson (1710) átti að mæta ungri rússneskri skákkonu. Diana Preobrazhenskaya. Hún virðist ekki hafa mætt til leiks skv. chess-results og Josef því kominn í 3 vinninga. Einhver þreyta eftir 11 umferða hraðskákmót fyrr um daginn, ákveðin vanvirðing að mati Skak.is!
UPPFÆRT: Josef mætir Alexander Dorazselski (2071) frá Þýskalandi í lokaumferðinni.















