Guðmundur Kjartansson gerði jafntefli í næstsíðustu umferðinni í Valencia á Spáni. Hannes Hlífar tapaði sinni skák en Josef endaði vel í Serbíu með góðu jafntefli.

Hannes gegn Guðmundi á Íslandsmótinu nú í ár

Íslensku landsliðsmennirnir Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Kjartansson (2429) sitja báðir að tafli í Valencia á Spáni þessa dagana. Guðmundur hafði 6/7 fyrir umferðina en Hannes 5,5/7.

Guðmundur mætti spænska stórmeistaranum Julen Luis Arizmendi Martinez. Gummi fékk lítið í drottningarbragðinu á hvítt og þráleikur virtist blasa við. Guðmundur ákvað að tefla taflið áfram en ef eitthvað er bauð hann hættunni heim og a-peð svarts hefði getað orðið stórhættulegt. Julen missti sem betur fer tökin. Staðan einfaldaðist í endatafl þar sem Guðmundur hafði tvö umframpeð en jafnframt tvö tvípeð og svartur hafði mjög einfalda blokkeringu. Einhvern veginn var sú staða þvæld alla leið í 96. leik þegar jafnteflið var loks niðurstaðan.

Hannes hafði hvítt gegn kúbverska alþjóðlega meistaranum Ernest Fernandez Guillen (2467). Kúbverjinn beitti Jaenisch gambítnum í spænska leiknum en Hannes fékk fína stöðu. Í miðtaflinu missti Hannes algjörlega tökin á stöðunni. 20.Hc1? var slakur en 20.Ra4 hefði hótað Dc1 og svartur þarf líklega að gefa skiptamuninn. Í kjölfarið kom keðjunverkun eins og oft gerist þegar menn missa tökin og staða fór hratt í skrúfuna. Slakasta skák Hannesar á mótinu en hann hefur fram að þessari skák verið að tefla mjög vel á mótinu.

Í lokaumferðinni mætir Guðmundur spænska alþjóðlega meistaranum Inigo Lopez Mulet (2404) með svörtu en Hannes fær svart á FIDE meistarann Andres Luque Saiz (2286). Guðmundur getur náð skiptu efsta sæti með hagstæðum úrslitum en hvernig sem fer hefur hann átt nokkuð farsælt mót.

Josef í Paracin (Mynd: Omar)

Josef Omarsson (1710) mætti Þjóðverjanum Alexander Dorazselski (2071) í lokaumferðinni í Paracin, Serbíu. Josef tefldi byrjunina af öryggi og lenti ekki í neinum vandræðum. Hann hefði getað fengið aðeins þægilegra endatafl en í staðinn einfaldaðist staðan í jafnt hróksendatafl og jafnteflið óumflýjanlegt.

Þetta mót var frábær reynsla fyrir Josef sem mætti bara skákmönnum með 2000+ stig og var enginn andstæðingur frá sama landi! Josef endaði mótið með 3,5 vinning af 9 og hagnast hann um 34 elóstig á þessu móti. Reynslan mun þó vega meira á endanum.

 

- Auglýsing -