Það var líf og fjör í Faxafeni 12 í gær og nánast húsfyllir. Þrátt fyrir að Áskorendaflokkur væri í fullum gangi fór sem fyrr fram Þriðjudagsmót og notast var við salarkynni Skáksambands Íslands til þess að hýsa mótið. Heilt yfir hafa verið yfir 80 manns í Faxafeninu í gær!
Gauti Páll Jónsson kom fyrstu í mark með fullt hús, 5 vinninga af 5 mögulegum. Í lokaumferðinni mætti hann Kjartani Maack sem þá hafði einnig fullt hús en varð að lúta í dúk gegn Gauta.

Róbert Vigfússon fékk verðlaun fyrir besta árangur miðað við eigin skákstig. Róbert hækkar um heil 64 elóstig. Arnaldur Árni Pálsson hækkaði þó mest allra eða um 83,6 elóstig!

Skákstjórn var í öruggum höndum Eiríks Björnssonar.
- Auglýsing -















